langar að deila því með ykkur hvað þetta er ömurlegur dagur. lenti í því í gær sem erla lýsti svo vel. semsagt gat ekki sofnað og leið ekki vel í nokkurri stellingu. svo vaknaði ég í morgun með hálsbólgu og hausverk. ohh mér er illt allstaðar:( gaman að mæta klukkan 7 í vinnuna þegar maður er svona vel haldin. afhverju er ég í vinnunni lasin?
allavega ætla ég ekki að gera neitt, bara eyða deginum á netinu. get kanski lesið mér til um berlín...því folks, ég er á leiðinni þangað eftir 3 vikur með elskulegri dúnu minni:) ekjet smá spennandi!
heyrðu svo fór mín á fiskidaginn mikla um helgina, ekjet smá stuð. segi nú bara hvað var ekki gert þar... Heiða og Katrín komu um kvöldið og við gerður marga skandala...sumir enn að rifjast upp og mislæmir. en vó, við vorum viltar: sumir hösluðu, sumir börðu og slógust, jafnvel stálu og enn aðrir rifust og síðast en ekki síst teknir með ekjet ökuskýrteini...afrekuðum djamm til 9 um morguninn! good times, good times:)
á sunnudagskvöldið fórum við villi og heiða í bíó á the long weekend...alltílagi afþreying á þreyttu sunnudagskvöldi. svo á eftir kíktum við á kaffihús...
í gær fórum við villi svo út að borða, þar sem heiða komst ekki með sökum vinnu þá fórum við bara til hennar í vinnuna, bautann. þar fengum við okkur þessa líka díryndis kjúkklingabringu sem kostði sinn skildinginn, mjög gott. svo kíktum við á rúntinn og skelltum okkur svo heimtil villa í video.
takk fyrir góða daga elskunnar:) finnum okkur svo tíma fyrir roadtrip:)
jæja ætli ég segi þetta ekki gott í bili...arrg klukkan er ekki einusinni orðin hálfníu. hvað á ég að gera til 2? e-r að koma og bjarga mér úr þessari vitleysu...
ég bíð og vona.
litli lasaríus
VIÐBÓT KL. 10:17 ---helvítis---
arrg ömurlegi dagur, það kom maður inní ljóta skórinn minn. hann var reykjandi pípu og hver veit hvur fjandinn var í henni, allavega e-ð mjög illa lyktandi! svo þegar hann fór skildi hann auvitað þessa ógeðis lygt eftir. ég flúði út í kuldann! lygtin er hér enn og í ofanálag heyrist ekjet nema tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, trikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk, tikk (ákvað að hafa þetta allt með svo þið gætuð upplifað skemmtunina) á þvílíkum ógnarhraða, e-ð sem þarf að vera í gangi fyrir þóttavélina og þurkarann. ég er að verða geðveik:(
lasaríus kveður að sinni