sælt veri fólkið. mér datt í hug að deila með ykkur hvurslags díryndis veislu ég var í á föstudaginn:) hann villi minn átti semsagt afmæli núna fyrr í sumar og lofaði uppí ermina á sér að halda smá samkomu! núna á föstudaginn síðastliðinn vorum við, þessi örfáu sem erum staðsett á akureyri í sumar, hóuð sman í matarboð. þarað segja ég, silja, albert og svo var auðvitað aðalmaðurinn villi:) heyrðu, það var ekjet smá matarboð heldur hvorki meira né minna en þríréttað. forréttur sem hljómaði uppá: Smjörsteiktur humar og hvítlauksbrauð= þið vitið ekki hvað þetta var gott!
aðalrétturinn var svo nautakjöt í bernaise-sósu, borið fram með grænmeti og frönskum kartöflum. að sjálfsögðu borðaði sigrún manna mest;)
á þessum tímapunkti voru held ég allir orðnir saddir en eihvernvegin náðum við að troða í oggur ís og fullt af nammi:)
Villi minn ég segi bara aftur takk fyrir mig, þú ert gullmoli, hlakka bara til að koma í næsta boð sem þú ert byrjaður að plana:)
það var alveg dásamlegt að fá kvöldmat þar sem ég er alltaf að vinna á kvöldin og lifi á samlokum úr súper og ekki var verra að fá svona líka ljúffengan mat þar sem var stjanað við mann:) snilld út í gegn!