Friday, April 21, 2006

litli lasaríus

það er e-ð athugavert að gerast með hausinn minn. er að velta því fyrir mér hvort migrenið, sem ég hélt ég væri laus við, sé að taka sig upp aftur. allavega hvað sem það nú heitir sem er að plaga kollinn minn þá er það af hinu illa. þetta er búið að halda mér frá skóla aftur og aftur í vetur. reyndar þykir flestum gott að losna við skóla af og til en það er ekki til gamans gert þegar lasaríus er á ferðinni. eigum við öll að gráta saman?

Saturday, April 15, 2006

eg er hnotubrjoturinn

hallóhalló...sigrún dreyf sig suður, gamangaman. það var byrjað á því að fara heim á flúðir sem var alveg það besta:) svo er það núna bærinn beibí og þær alhörðustu drösluðust á djammið í gær...rétt fyrir 3. þá var sögð hin fleyga setning: við verðum sko ekjet til 6 eða eikkað...og svo við lentum í nokkrum new yorkers sem að voru bara hellandi í okkur sem var af hinu góða þar sem stelpurnar voru svo gott sem edrú. það semsagt rættist úr kvöldinu þegar við fundum okkur nokkra unga karlmenn til að dansa við...svo var dröslast heim um 6 voila!!! en nú er ljóti dagurinn framundan: lærdómur!!!!

Wednesday, April 12, 2006

Reykjavík smeykjavík

úff þið vitið ekki hvað þetta er allt mikið bras...hérna í gamla daga var hægt að skjótast til reykjavíkur eins og ekjet væri. núna aftur á móti er eiginlega auðveldara að skella sér til danmerkur eða jafnvel króatíu. þetta er nátla bara niðurdrepandi. sigrúnin er semsagt á leiðinni suður á morgun en þetta er búið að dragast svo lengi að ég nenni þessu ekki lengur. elskurnar mínar í kvennaathvarfinu, ekki misskilja mig...er kem og hlakka til að sjá ykkur en mikið væri það nú gaman ef þetta væri ekki svona mikið vesen!!! það verður held ég ekki ákveðið fyrr en á morgun hvernig og með hverjum ég fer en eitt veit ég ég skal komast á leiðarenda:)svo er það líka peningalega hliðin sem eila aftrar manni í öllu...og kanski ekki skrítið þar sem eftir tæpan mánum verður sigrún atvinnulaus. þannað ef þið vitið um vinnu handa mér þá láta mig vita. það er nú ekki oft sem ég hef áhyggjur en ég er farin að óttast þetta sumar....

Monday, April 10, 2006

mygl á heimavelli

dónadýrið auglýsir hér með eftir fari eða ferðafélaga til reykjavíkur. ungir og myndalegir drengir koma sérstaklega til greina;) en taka má fram að hér er um að ræða skemmtiferð þannað Katrín...ég bíð eftir símtali þar sem þú segir: pakkaðu niður kelling, við förum í bítið!!! Sigrún neitar því að mygla hér á norðurhjaranum allt páskafríið þannað krakkar...hver er til í roadtrip? og hey, það er bannað bera fyrir sig peningaleysi því sigrúnin er að farað eyða síðustu krónunum sínum í þetta! sýnum nú lit og fjölmennum í litla menningarferð...

Saturday, April 08, 2006

klippt rúnstikki (rúmmstikki einsog ég kís að kalla þau)

okey ég elska gamalt fólk...en þegar það kemur og drullar yfir mann þá er það ekki heilagt frekar en aðrir! sigrún var semsagt að vinna í dag og inn kemur gömul budda. sigrún tekur vel á móti gömlu og setur upp colgate-brosið:D en þegar ellilífeyrisþeginn fer að biðja um klippt rúnstikki(bendir á birkirúntikki) þá verður sigrún svolítið áttavilt og segist ekki eiga neitt þvíumlíkt. sú aldraða verður fúl á móti og fer að gefa í skin að sigrúnin sé bara hálviti!!! eftir langt rifrildi kemur truntan inn fyrir afgreiðsluborðið..potar í öll rúnstikkin og segir: þetta eru klippt rúnstikki, þú hlýtur að sjá það sjálf!!! (þetta var b.t.w. elkki á sama stað og kellan benti á í upphafi) ...mikið voðalega langaði sigrúnu að skalla þá öldruðu.
allavega hvað í fjandanum er klippt brauð?

Friday, April 07, 2006

loksins loksins

jæja...þá er dónadýrið komið í páskafrí, allavega frá skólanum:) Skemmtileg tilfinning þar á ferð get ég sagt ykkur!!! bara vest að það er ekjet plan komið á það hvað á að gera í þessu blessaða fríi:( eikkurar hugmyndir?

Tuesday, April 04, 2006

Sigrúnus Karnivalus

daddara...vegna fjölda áskorana hefur dónadýrið búið til blogg:) enda ekki seinna vænna þar sem umrætt dýr er orðið svo háð blogglestri. nú er komið að því að gefa e-ð af sér í þessu sambandi;) vonandi vekur það upp kátínu krakkar mínir...